Tuesday, May 15, 2012

Vorið.

Vorið kemur eins og fugl sem hefur sprottið fjaðrir en er enn ófleygur. Við það loðir sakleysi og rótleysi og að baki því liggur tómleiki vetrarins sem verður ekki umfaðmaður. Vorið kemur með vonina, lífið sprettur fram líkt og trjágreinarnar sem skrúðast grænum laufum og ilmurinn sem fylgir nýjum gróðri.
Þú ert umvafin fallegri ásjónu, góðum ilmi og góðum fyriráætlunum. En allt í einu eru allt í kringum þig pör í praktískum skóm. Þú veltir fyrir þér hvort þessi skótíska fylgi vorinu. Stígvélin þín meira að segja leka. Vorið er fjaðrareyttur fugl sem aldrei nær að hefja sig til flugs.

No comments:

Post a Comment